Óánægjufylgi ?

Ja, nú er bara að standa undir væntingum.             Fá til liðs við sig fólk með almenna dómgreind, fólk með sérþekkingu og virðingu fyrir sjálfu sér og öðrum, en umfram allt fólk, sem getur "lekið" sem mestu af svokölluðum trúnaðarupplýsingum, sérstaklega þeim sem varða stjórnsýslu, fjármál, banka og almannahagsmuni. Það er af hinu góða og upprætir spillinguna, sem grasserar og vex eins og myglusveppur með hverjum deginum í samfélaginu.                               Það má samt ekki rugla saman opinberum trúnaði         ( upplýsingum, sem alla varðar og allir eiga skýlausan rétt á að vita ) og viðkvæmum persónuupplýsingum.                                   Og í guðanna bænum forðist persónulegar ávirðingar og skítkast, eins og heitan eldinn.


mbl.is Óánægjufylgi til Pírata, ekki öfgaflokka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að stytta sér leið.

Það liggur svo beint við að Arnar er á eftir, þegar kemur að beygjunni. Hann stekkur því yfir gangstéttina og innan við staurinn og beint í veg fyrir Ingvar.

Nú hef ég ekki séð hvernig hlaupalínan var uppteiknuð, en ekki finnst mér annað líklegt, en að hlaupararnir hafi átt að fara út fyrir staurinn.


mbl.is Stytti Arnar sér leið?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonandi hafa þessir dómarar "almenna dómgreind"

Hvað er til viðurstyggilegra en að setja eigin þjóð sína á "hausinn" með einbeittum brotavijla ?

 


mbl.is Mál án fordæma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki meir, ekki meir.

 

Nú finnst mér nóg komið af orðagjálfri og skrifræpu.

Ég leyfi mér enn einu sinni að mótmæla fyrirhugaðri staðsetningu Landspítalans við Hringbraut.

Það yrði þvílík skerðing á möguleikum íbúa miðbæjar, vesturbæjar og Seltjarnarness til að komast leiðar sinnar heim og að heiman, að ég get ekki hugsað þá hugsun til enda.

Jafnframt mundi það skapa algjört öngþveiti við flutning sjúklinga.

Jafnframt bendi ég á Vífilstaðasvæðið, eins og reyndar margir hafa gert áður.

Byrja strax að byggja þar og ekki orð um það meir.

 


mbl.is Hagkvæmast að byggja við Hringbraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Staðsetning Landspítala

Mér finnst, eins og mörgum öðrum liggja beint við að byggja spítalann á Vífilstaðareitnum.

Þar er  og verður greiðfært til allra átta, Suðurnesja, austur fyrir fjall, vestur og norður.

Fyrirhuguð staðsetning í Vatnsmýrinni er vonlaus, veldur algjöru umferðaröngþveiti og læsir bókstaflega öllum leiðum fyrir vesturbæinga og Seltjarnarnesbúa sem nú eru reyndar aðeins tvær, auk þess sem hún skerðir allan viðbragðstíma, þegar mikið liggur við. Nálægð Reykjavíkurflugvallar skiptir litlu máli í þessu samhengi.

Auðvitað má koma þar fyrir þyrlupöllum fyrir "akút" (bráða) tilvik, jafnvel velli fyrir sjúkraflug

Þessi lóð við Útvarpshúsið er lítil og svo arfavitlaus staðsetning miðað við umferð, að hún er sjálfkrafa dæmd út af borðinu. Hreinlega annarlegt að einhverjum skula láta sér detta sú staðsetning í hug.

Reyndar er búið að eyða miklum tíma og fjármagni í undirbúning spítalans í Vatnsmýrinni á undanförnum árum, svo sem í samkeppnir, útreikninga arkitekta, byggingafræðinga, teikningar og fleira, en allir sem "vilja", sjá að þarna er á ferðinni aðgerð fyrir almenna velferð ti frambúðar, en ekk sérhagsmuni einstaklinga eða þrýstihópa til skamms tíma.

Hefjum byggingaferlið strax á Vífilsstaðasvæðinu.


mbl.is Bregst við gagnrýninni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðbjóður

Þetta er svo mikil svívirða og mannfyrirlitning að maður verður kjaftstopp.


mbl.is Bankatoppar fengu rúman milljarð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hrokagikkir við stjórnvölinn.

Mér finnst það koma æ betur í ljós hvað þeir, sem sækjast helst eftir að komast að kjötkötlunum og stjórnun, eru lausir við sjálfsgagnrýni og já, bara illa upp aldir.


mbl.is „Hefur ekkert með aldur að gera“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skattsvik = landráð

Já, já. Um að gera að gefa landráðamönnunum 1 ár í viðbót við þessi 7 sem liðin eru frá hruni, til þess að hylja enn betur slóðina.

Arne litli Treholt var dæmdur fyrir landráð vegna þess að hann sást með skjalatösku á tali við Rússa á kaffihúsi. Aldrei fékkst upplýst hvað þessi skjalataska innihélt.

Misyndismennirnir, sem stálu öllu steini léttara og settu þjóðina sína á hausinn, fá fjölda ára til að koma þýfinu undan. Hverjir eru landráðamenn, ef ekki þeir?

Mér finnst þetta skrýtið, verð að segja það.


mbl.is Skattsvikarar fá eins árs frest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frelsi

Fyrir mér er þetta ósköp einfalt.

Frelsi eins endar þar sem frelsi annars hefst.

Ef þetta "grundvallar samskiptalögmál" er ekki virt, leiðir það til átaka.

Kúnstin er að sjá hvar mörkin liggja.

Þannig er nú það.

 

 


mbl.is Frelsi hinna fáu til að maka krókinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óásættanlegt.

Sérhagsmunahópum með þokkaleg laun, eins og flugmönnum og flugvirkjum, er kannski frjálst að skera undan sér.
En að skera undan heilli þjóð er gersamlega ólíðandi glæpur, sem verður að bregðast við eins og skot, umsvifalaust.

Næsta síða »

Um bloggið

Stefán Aðalsteinsson

Höfundur

Stefán Aðalsteinsson
Stefán Aðalsteinsson

Eldri borgari með ahuga á almennri velferð.

Vonar að hann hafi almenna dómgreind og réttlætiskennd.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband